Starfsdagar 8. og 9. sept.

Vegna starfsdaga og endurmenntunar kennara fellur kennsla niður fimmtudag 8. sept. og föstudag 9. sept. Starfsdagar eru hluti af vinnuskyldu kennara og eru nokkrir yfir árið. Þessa daga verða kennarar á ráðstefnunni „Tónlist fyrir alla“ sem haldin er í tilefni 40 ára afmælis Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum í samstarfi við Samtök tónlistarskólastjóra, tónlistardeild Listaháskóla Íslands og Félag íslenskra hljómlistarmanna.

Deila fréttinniSenda í tölvupósti
Allar fréttir