Næstu tvær vikurnar (12. – 25. sept) stendur foreldrafélagið sem fyrr fyrir sölu á skólapeysunum sívinsælu, en þar gefst tækifæri til að kaupa peysur með merki skólans. Fyrir framan biðstofu skólans má sjá eintök af peysunum í mismunandi stærðum. Þar liggur einnig skráningarblað fyrir pantanir. Lokadagur til að skila inn pöntunum er sunnudagurinn 25. september
