Allar kennslugreinar
á einum stað
Forskóli, einkakennsla og hópkennsla fyrir alla aldurshópa. Smelltu á kort til að lesa nánar um hverja grein.
19 kennslugreinar · nám frá 5 ára aldri
Forskólar
Grunnurinn að tónlistarnámi fyrir yngstu nemendurna
Forskóli I og II
Börn sem innritast sex ára eru tvö ár í forskóla en sjö ára börn eitt ár. Kennt er í hópum og eru fimm til átta nemendur í hverjum hópi. Í forskólanum fá nemendur alhliða tónlistarþjálfun með því að taka þátt í söng, blokkflautuleik (forskóli II), hreyfi- og hrynþjálfun og markvissri hlustun. Frumatriði í tónfræði eru kennd í forskóla II. Ýmiss konar skapandi starf er snar þáttur í náminu. Forskólanámið byggir að verulegu leyti á tónlistarupplifun nemenda, sérstaklega í forskóla I.
Píanóforskóli
Kennt er tvisvar í viku; einkatími í 30 mínútur og 30-45 mínútna hóptími (fer eftir nemendafjölda). Þeir nemendur sem eru að hefja þriðja árið í píanóforskóla (sjö ára) geta þar að auki stundað hóptíma í forskóla II (2 x 50 mín. á viku) án aukakostnaðar. Þar sem nemendur í píanóforskóla eru mjög ungir að árum má segja að nám þeirra standi eða falli með stuðningi og þátttöku foreldra. Því eru gerðar kröfur um að annað foreldrið mæti í einkatímana með barninu og að unnið sé með því heima. Vinsamlega athugið að ef nemandi ætlar að læra á píanó þarf að vera til hljóðfæri á heimilinu.

Fiðluforskóli
Kennt er tvisvar í viku; einkatími í 30 mínútur og 30-45 mínútna hóptími (fer eftir nemendafjölda). Þeir nemendur sem eru að hefja þriðja árið í fiðluforskóla (sjö ára) geta þar að auki stundað hóptíma í forskóla II (2 x 50 mín. á viku) og tekið þátt í hljómsveitastarfi án aukakostnaðar. Þar sem nemendur í fiðluforskóla eru mjög ungir að árum má segja að nám þeirra standi eða falli með stuðningi og þátttöku foreldra. Því eru gerðar kröfur um að annað foreldrið mæti í einkatíma með barninu og að unnið sé með því heima.

Sellóforskóli
Kennt er tvisvar í viku; einkatími í 30 mínútur og 30-45 mínútna hóptími (fer eftir nemendafjölda). Þeir nemendur sem eru að hefja þriðja árið í sellóforskóla (sjö ára) geta þar að auki stundað hóptíma í forskóla II (2 x 50 mín. á viku) og tekið þátt í hljómsveitastarfi án aukakostnaðar. Þar sem nemendur í sellóforskóla eru mjög ungir að árum má segja að nám þeirra standi eða falli með stuðningi og þátttöku foreldra. Því eru gerðar kröfur um að annað foreldrið mæti í einkatíma með barninu og að unnið sé með því heima.

Gítarforskóli
Kennt er tvisvar í viku; einkatími í 30 mínútur og 30-45 mínútna hóptími (fer eftir nemendafjölda). Þar sem nemendur í gítarforskóla eru mjög ungir að árum má segja að nám þeirra standi eða falli með stuðningi og þátttöku foreldra. Því eru gerðar kröfur um að annað foreldrið mæti í einkatíma með barninu og að unnið sé með því heima.

Hljóðfæranám
Einkakennsla á fjölbreyttum hljóðfærum
Fagott
Oft eru nemendur eldri þegar þeir hefja nám á hljóðfærið því nauðsynlegt er að hafa náð ákveðnum líkamlegum þroska til að ráða við fagottið. Hendur nemandans þurfa að hafa náð vissri lágmarksstærð. Kostur er að nemendur, sem hyggjast læra á fagott hafi lært á annað hljóðfæri áður og hafi fengið þjálfun í nótnalestri. Ekki er mælt með einu ákveðnu byrjunarhljóðfæri en klarínetta og þverflauta eru algengust þó önnur hljóðfæri komi vel til greina svo sem píanó eða strengjahljóðfæri. Fagott eru gerð úr tré eða plasti og eru öll af sömu stærð en þó eru fáanleg hljóðfæri fyrir smáar hendur. Algengt er að nemendur leigi fagott í upphafi náms frá tónlistarskólanum þar sem hljóðfærið er dýrt.

Fiðla og lágfiðla
Fiðlan er gerð úr viði og hefur fjóra strengi. Spilað er á fiðluna með boga úr viði og hrosshárum en einnig er hægt að plokka í strengina með fingrunum. Hefðbundið fiðlunám hefst oft um sjö ára aldur en hægt er að hefja nám í fiðluforskóla frá fimm ára aldri. Fiðlur eru til í ýmsum stærðum en hægt er að leigja fiðlu hjá skólanum sem hentar stærð nemandans. Fiðlunemendur taka þátt í hljómsveitastarfi og ýmiss konar samleik.

Gítar
Það er ekki nauðsynlegt að kunna á annað hljóðfæri áður en nám í gítarleik hefst en eitt til tvö ár í forskóla er þó góður grunnur. Algengt er að gítarnemendur hefji nám við átta ára aldur. Flestir kaupa sinn eigin gítar en auk þess þurfa nemendur að eiga fótstig og nótnapúlt.

Hljómborð
Nám á hljómborð fer fram í hóptímum þar sem 4 nemendur eru saman í 2 x 30 mínútur á viku. Æskilegt er að nemandi hafi náð átta ára aldri, en nemendum er skipt í hópa eftir aldri og getu. Í tímum læra nemendur hljóma og hefðbundnar nótur, vinna með spuna og taka auðvitað þátt í samspili. Námið hentar vel þeim sem vilja góðan grunn á hljómborð og gefur möguleika á framhaldi í klassísku píanónámi jafnt sem áframhaldandi rytmísku námi.

Klarinett
Klarinettið er gamalt hljóðfæri en vinsældir þess jukust mjög fyrir um 200 árum þegar hið fræga tónskáld W. A. Mozart tók ástfóstri við hljóðfærið og samdi fyrir það mörg falleg lög. Klarinett er notað í sinfóníuhljómsveitum, spilar t.d. köttinn í Pétri og úlfinum eftir Prokofiev, og eins er það mikið notað í klezmer- og jazz tónlist. Til eru um 12 mismunandi tegundir af mismunandi stórum klarinettum. Það klarniett sem flestir byrja að læra á heitir B – klarinett. Nemendur þurfa að vera orðnir um átta til níu ára til að læra á það og það hjálpar að hafa lært dálítið á blokkflautu fyrst. Til eru minni og léttari klarinettur, svokallaðar C klarinettur, sem gefa möguleika á að byrja nokkru fyrr, eða um sjö ára aldur. Skólinn leigir nemendum sem þess óska klarinett.

Miðstöðin
Deildinni er ætlað að koma til móts við áhugasvið þeirra nemenda sem vilja stunda tónlistarnám af kappi en hafa meiri áhuga á námi í popptónlist en hefðbundnu klassísku tónlistarnámi. Yfirkennari deildarinnar er Ólafur Elíasson píanóleikari. Kennt er eftir rytmískri aðalnámskrá tónlistarskólanna og er mikil áhersla lögð á samspil í deildinni. Allir nemendur Miðstöðvarinnar fá bæði einkatíma og samspilstíma, en nemendur eru einnig hvattir til að mæta sem gestir í einkatíma félaga sinna í þeim samspilsverkefnum sem þeir eru í. Miðstöðin er ætluð nemendum 10 ára og eldri. Umsækjendur sem hafa tónlistarnám að baki, á hvaða hljóðfæri sem er, ganga fyrir.

Píanó
Þegar spilað er á nótu á hljómborðinu, slær hamar á streng hörpunnar og myndar tóninn sem berst úr hljóðfærinu. Píanó eru annars vegar til upprétt, þá er harpa hljóðfærisins lóðrétt og hinsvegar lárétt og heita þá flygill. Píanóinu hefur oft verið líkt við hljómsveit vegna fjölbreyttra blæbrigða og víðs tónsviðs hljóðfærisins, sem telur sjö áttundir. Margir hljómsveitarpartar hafa því verið umritaðir fyrir píanó. Til að hefja píanónám er æskilegt að nemandi hafi náð sjö til átta ára aldri. Þó er boðið upp á píanóforskóla fyrir nemendur frá fimm ára aldri. Mikilvægt er að nemendur öðlist færni í samspili hvort heldur það er með fleiri píanónemendum eða samspili ólíkra hljóðfæra. Skilyrði fyrir píanónámi er að nemandinn hafi óhindraðan aðgang að píanói til heimaæfinga.

Rafmagnsgítar
Ólíkt klassískum gítar, sem er með nælonstrengjum, eru stálstrengir í rafgítarnum. Hljóð frá strengjunum er numið af „pick up“ gítarsins sem breytir því í rafbylgjur sem síðan eru sendar með snúru í gítarmagnara þar sem hægt er að hafa áhrif á tóninn og magna upp hljóðið nánast endalaust. Rafgítarinn er notaður í alls konar tónlist þó mest í jazz og dægurtónlist. Nám á rafmagnsgítar fer fram í hóptímum þar sem 4 nemendur eru saman í 2 x 30 mínútur á viku. Æskilegt er að nemandi hafi náð 10 ára aldri, en nemendum er skipt í hópa eftir aldri og getu. Í tímum læra nemendur hljóma og hefðbundnar nótur, vinna með spuna og taka auðvitað þátt í samspili.

Saxófónn
Hljómur hans er mjúkur og fallegur en getur líka verið sterkur og spennandi. Saxófónn er mest notaður í jazz- og popp tónlist og er frægur fyrir t.d. lagið Carless Whisper , en hann er líka notaður í klassískri tónlist. Til eru margar stærðir af saxófónum, frá litlum sópran saxófónum til risastórra baritón saxófóna. Sá algengasti er alt saxófónninn og hægt er að hefja nám á hann um níu til ellefu ára aldur, jafnvel aðeins yngri, allt eftir þroska nemandans. Oft lærir nemandi á annað blásturshljóðfæri á undan t.d. blokklautu en það er þó ekki nauðsynlegt. Skólinn leigir nemendum sem þess óska saxófón.

Selló
Sellóið kom fyrst fram á sjónarsviðið í sinni núverandi mynd um 1660 og síðan þá hefur verið spilað á það sitjandi og það látið hvíla á milli fótanna á stálpinna. Sellóið er eina hljóðfærið sem hægt er að knúsa þegar maður spilar og það er líka sérstakt að því leyti að það er bæði bassa hljóðfæri og einleikshljóðfæri í einu. Hljómurinn er blæbrigðaríkur og syngjandi og líkist að mörgu leyti mannsröddinni. Hefðbundið sellónám hefst oft um sjö ára aldur en hægt er að hefja nám í sellóforskóla frá fimm ára aldri. Selló eru til í ýmsum stærðum en hægt er að leigja selló hjá skólanum sem hentar stærð nemandans. Sellónemendur taka þátt í hljómsveitastarfi og ýmiss konar samleik.

Þverflauta
Börn allt frá sjö ára aldri geta lært á hljóðfærið. Almennt forskólanám nýtist vel og ekki er verra að hafa lært svolítið á blokkflautu eða píanó. Tónn þverflautunnar er bjartur en getur líka verið hlýr. Fyrir hana hafa verið skrifuð mörg ægifögur verk og sóló (innan stærri verka). Hún er vinsæl og leikur oft laglínur í samspili en spriklar líka og sprellar við eyrun. Flautan er létt og fyrirferðalítil. Ekki er mjög kostnaðarsamt að eignast flautu en einnig er hægt að fá leigðar flautur hjá skólanum.

Hópkennsla
Samspil og hljómsveitir fyrir alla aldurshópa
Blásarasveit A, B og C
Með þessari samvinnu verður hljómsveitin stærri og meiri líkur á að hljóðfæraskipan verði breiðari en skemmtilegra er fyrir nemendur að starfa við slík skilyrði. Skólahljómsveit Austurbæjar hefur aðsetur sitt í Laugalækjarskóla og stjórnandi hennar er Björg Brjánsdóttir. Í Skólahljómsveit Austurbæjar eru starfræktar 3 sveitir A, B og C sveitir. A sveitin er fyrir yngstu nemendurna, B sveitin fyrir aðeins lengra komna og C sveitin fyrir þau elstu og lengst komnu. Sveitirnar æfa tvisvar sinnum í viku í um klukkutíma í senn. Þar sem umfang tónlistarnáms þeirra nemenda sem innritaðir eru í Tónmenntaskólann er töluvert meira en þeirra nemenda sem skráðir eru í Skólahljómsveit Austurbæjar geta nemendur Tónmenntaskólans samið um að mæta aðeins á aðra æfingu sinnar sveitar. Þátttaka í hljómsveitum skólans er skylda fyrir alla blásaranemendur og telst mikilvægur þáttur í náminu.
Strengjasveitir
Stjórnandi hennar er Guðbjartur Hákonarson. Eldri nemendur taka þátt í kammersamspili yfir veturinn og þeir lengst komnu taka þátt í Strengjasveit Tónskóla Sigursveins, en Tónmenntaskólinn og TSDK hafa í mörg ár átt í hljómsveitarsamstarfi. Þátttaka í hljómsveitum skólans er skylda fyrir alla strengjanemendur og telst mikilvægur þáttur í náminu.
Samspil
Má þar t.d. nefna samspil gítarnemenda og ýmiss konar kammermúsík fyrir mismunandi hljóðfærasamsetningar.
Engar kennslugreinar fundust.
Prófaðu aðra leit eða hreinsaðu síuna.
Sæktu um pláss
Tilbúin að byrja? Umsókn tekur nokkrar mínútur.
Sækja um (opnast á tonviska.is í nýjum flipa)







