Rafmagnsgítar

  • Hljóðfæranám
  • Frá 10 ára
  • 45 mín
  • Einn á einn
Rafmagnsgítar

Um námsgreinina

Miðað við flest önnur hljóðfæri á rafgítarinn sér stutta sögu.Fyrstu heimildir um rafgítar eru frá 1932 og fyrsta upptaka frá 1938. Það var einkum þörfin fyrir hljómsterkari gítar í stórsveitum sem varð til þess að rafgítarinn var fundinn upp.

Byrjað frá
10 ára
Á viku
1 tími
Lengd tíma
45 mín
Kennsluform
Einn á einn

Ólíkt klassískum gítar, sem er með nælonstrengjum, eru stálstrengir í rafgítarnum. Hljóð frá strengjunum er numið af „pick up“ gítarsins sem breytir því í rafbylgjur sem síðan eru sendar með snúru í gítarmagnara þar sem hægt er að hafa áhrif á tóninn og magna upp hljóðið nánast endalaust. Rafgítarinn er notaður í alls konar tónlist þó mest í jazz og dægurtónlist. Nám á rafmagnsgítar fer fram í hóptímum þar sem 4 nemendur eru saman í 2 x 30 mínútur á viku. Æskilegt er að nemandi hafi náð 10 ára aldri, en nemendum er skipt í hópa eftir aldri og getu. Í tímum læra nemendur hljóma og hefðbundnar nótur, vinna með spuna og taka auðvitað þátt í samspili.

  • Magni Freyr Þórisson

    Kennari

Prófaðu að spila

Veldu lag og fylgdu ljósinu, eða spilaðu frjálst á nóturnar.

Smelltu á nóturnar, eða notaðu stafina A til Æ á lyklaborðinu.

Sæktu um nám

Umsóknir fara fram á tonviska.is. Skrifstofan svarar spurningum í síma 562 8477.