Sellóforskóli

  • Forskólar
  • Frá 5 ára
  • 30 mín
  • Hópur
Sellóforskóli

Um námsgreinina

Sérstakur sellóforskóli er starfræktur fyrir 5 til 7 ára börn með það að markmiði að gefa börnum á þessum aldri, sem eru enn ekki læs á nótur, tækifæri til að kynnast sellóinu, læra einföldustu lög eftir eyranu og grundvallartækni á hljóðfærið, sem og grundvallaratriði í tónfræði í gegnum leik og söng.

Byrjað frá
5 ára
Á viku
1 tími
Lengd tíma
30 mín
Kennsluform
Hópur

Kennt er tvisvar í viku; einkatími í 30 mínútur og 30-45 mínútna hóptími (fer eftir nemendafjölda). Þeir nemendur sem eru að hefja þriðja árið í sellóforskóla (sjö ára) geta þar að auki stundað hóptíma í forskóla II (2 x 50 mín. á viku) og tekið þátt í hljómsveitastarfi án aukakostnaðar. Þar sem nemendur í sellóforskóla eru mjög ungir að árum má segja að nám þeirra standi eða falli með stuðningi og þátttöku foreldra. Því eru gerðar kröfur um að annað foreldrið mæti í einkatíma með barninu og að unnið sé með því heima.

Skrifstofa skólans veitir upplýsingar um kennara í þessari grein.

Hringja í 562 8477

Prófaðu að spila

Veldu lag og fylgdu ljósinu, eða spilaðu frjálst á nóturnar.

Smelltu á nóturnar, eða notaðu stafina A til Æ á lyklaborðinu.

Sæktu um nám

Umsóknir fara fram á tonviska.is. Skrifstofan svarar spurningum í síma 562 8477.