
Um námsgreinina
Sérstakur gítarforskóli er starfræktur fyrir 5 til 7 ára börn með það að markmiði að gefa börnum á þessum aldri, sem eru enn ekki læs á nótur, tækifæri til að kynnast gítarnum, læra einföldustu lög eftir eyranu og grundvallartækni á hljóðfærið, sem og grundvallaratriði í tónfræði í gegnum leik og söng.
- Byrjað frá
- 5 ára
- Á viku
- 1 tími
- Lengd tíma
- 30 mín
- Kennsluform
- Hópur
Kennt er tvisvar í viku; einkatími í 30 mínútur og 30-45 mínútna hóptími (fer eftir nemendafjölda). Þar sem nemendur í gítarforskóla eru mjög ungir að árum má segja að nám þeirra standi eða falli með stuðningi og þátttöku foreldra. Því eru gerðar kröfur um að annað foreldrið mæti í einkatíma með barninu og að unnið sé með því heima.
Kennarar
Allt starfsfólk skólansSkrifstofa skólans veitir upplýsingar um kennara í þessari grein.
Hringja í 562 8477Prófaðu að spila
Veldu lag og fylgdu ljósinu, eða spilaðu frjálst á nóturnar.
Smelltu á nóturnar, eða notaðu stafina A til Æ á lyklaborðinu.
Sæktu um nám
Umsóknir fara fram á tonviska.is. Skrifstofan svarar spurningum í síma 562 8477.