Tilkynning
Telji starfsmaður eða nemandi sig verða fyrir ótilhlýðilegri háttsemi af hendi samstarfsmanns er mikilvægt að hann láti meintan geranda eða gerendur vita að honum mislíki framkoma hans í sinn garð og óski eftir að slík hegðun endurtaki sig ekki.
Ef sá sem telur sig hafa orðið fyrir einelti, ofbeldi, kynferðislegri eða kynbundinni áreitni í skólanum eða hefur rökstuddan grun eða vitneskju um slíka hegðun treystir sér ekki til að koma slíkri ósk á framfæri við meintan geranda skal hann snúa sér til skólastjóra eða aðstoðarskólastjóra og upplýsa þá um stöðu mála. Að því loknu hefst málsmeðferð og er þar lagt mat á stöðu málsins.
Til þess að auðvelda vinnslu máls eru starfsfólk og nemendur hvött til þess að skrá hjá sér atvik og hegðun sem um ræðir. Skrá ætti tíma og dagsetningar, nöfn þeirra sem voru viðstaddir ef við á og aðstæður þegar atvik átti sér stað. Tilkynning um einelti, ofbeldi, kynferðislega eða kynbundna áreitni getur verið munnleg eða skrifleg. Við meðferð tilkynninga sem berast er fyllsta trúnaðar gætt.
Hvernig á skólastjóri að bregðast við?
Skólastjóra sem fær tilkynningu um einelti, ofbeldi, kynferðislega eða kynbundna áreitni ber að kanna málið og bregðast við. Ef skólastjóri getur af einhverjum ástæðum ekki tekið á málinu skal hann vísa því til aðstoðarskólastjóra. Starfsmaður eða nemandi sem verður fyrir óviðeigandi hegðun af þessu tagi getur einnig kosið að snúa sér beint til aðstoðarskólastjóra eða trúnaðarmanns kennara.
Fyrstu viðbrögð þess aðila eiga að felast í því að meta þörf starfsmanns fyrir stuðning og í framhaldi af því er tekin ákvörðun um næstu skref. Starfsfólk er beðið að virða trúnað og persónuvernd og ræða málið eingöngu við þá sem hafa með það að gera meðan á vinnslu þess stendur.