Heitor Villa-Lobos

1887 – 1959
Uppruni
Brasilískt
Fæðingarár
1887
Dánarár
1959
Safn
Tónskáld
Heitor Villa-Lobos
Portrett
Heitor Villa-Lobos
Nº 021

✦ Ævisaga ✦

Heitor Villa-Lobos (5. mars 1887 – 17. nóvember 1959) var brasilískt tónskáld, hljómsveitarstjóri, sellóleikari og gítarleikari. Honum var oft lýst sem „áhrifamesta tónskáldi Brasilíu á 20. öld“. Villa-Lobos er þekktasta Suður-Ameríska tónskáld allra tíma. Hann var afkastamikið tónskáld og samdi mörg hljómsveitar-, kammer-, hljóðfæra- og söngverk, en samtals voru verk hans um 2000 talsins. Tónlist hans var undir áhrifum frá bæði brasilískri þjóðlagatónlist og evrópskri klassískri hefð, eins og verk hans Bachianas . Æfingar hans fyrir gítar (1929) voru tileinkaðar Andrés Segovia en 5 Prelúdíur (1940) voru tileinkaðir maka hans Arminda Neves d'Almeida, einnig kallað Mindinha . Bæði verkin eru talin til tímamótaverka í heimi gítartónlistar. Villa-Lobos fæddist í Rio de Janeiro. Faðir hans, Raúl, var embættismaður, tónlistarmaður og bókavörður auk þess sem hann var áhugamaður um stjörnufræði. Á uppvaxtarárum Villa-Lobos fór Brasilía í gegnum tímabil samfélagsbyltingar og nútímavæðingar, afnám þrælahalds árið 1888 og ári síðar var heimsveldi Brasilíu steypt af stóli. Breytingarnar í Brasilíu komu fram í tónlistinni: áður hafði evrópsk tónlist haft ráðandi áhrif, og námið í Conservatório de Música var byggt á þekktum aðferðum kontrapunkts og hljómfræði. Villa-Lobos fór þó ekki í gegnum hefðbundið tónlistarnám. Hann lærði tónlist með því að fylgjast með tónlistarkvöldum heima hjá sér sem faðir hans sá um. Hann lærði að spila á selló, klarinett og gítar. Þegar faðir hans dó árið 1899 vann hann sér farborða fyrir fjölskyldu sína með því að leika í kvikmyndahúsum og leikhúshljómsveitum í Ríó. Um 1905 hóf Villa-Lobos rannsóknir á „ frumbyggjatónlist “ Brasilíu og gleypti við innfæddri brasilískri tónlistarmenningu. Hann fór að semja tónlist eftir áhrifum tónlistar frumbyggja Brasilíu, byggða á portúgölskum og afrískum áhrifum, auk amerísk- indverskra þátta. Elstu tónverk hans voru afrakstur spuna á gítarinn frá þessu tímabili. Villa-Lobos lék með mörgum brasilískum götuhljómsveitum; hann varð einnig fyrir áhrifum frá kvikmyndatónlist og spuna í tangó og polkum frá Ernesto Nazareth. Arthur Napoleão, píanóleikari og tónlistarútgefandi, hvatti Villa-Lobos áfram til að semja tónlist og ákvað Villa-Lobos í kjölfarið að semja af alvöru.