Snorri Sigfús Birgisson

1954
Uppruni
Íslenskt
Fæðingarár
1954
Dánarár
—
Safn
Tónskáld
SSB
Portrett
Snorri Sigfús Birgisson
Nº 037

✦ Ævisaga ✦

Tónskáldið og píanóleikarinn Snorri Sigfús Birgisson (f. 29. apríl 1954) hóf tónlistarnám hjá Gunnari Sigurgeirssyni og hélt síðan til náms við Tónlistarskólann í Reykjavík þar sem kennarar hans voru Hermína Kristjánsson, Jón Nordal, Árni Kristjánsson (píanó), og Þorkell Sigurbjörnsson (tónsmíð). Hann lærði á píanó hjá Barry Snyder við Eastman School of Music, U.S.A. (1974-1975) og tónsmíðar hjá Finn Mortensen í Noregi þar sem hann lærði einnig raftónlist hjá Lasse Thoresen og sonology hjá Thoresen og Olav Anton Thommessen (1975-76). Snorri flutti til Amsterdam árið 1976 þar sem hann lærði tónsmíðar í tvö ár hjá Ton de Leeuw. Síðan 1980 hefur hann verið búsettur í Reykjavík þar sem hann er virkur sem tónlistarmaður og tónlistarkennari. Hann hefur samið einleiksverk, kammerverk, sinfónísk verk og kórtónlist. Hann er meðlimur í CAPUT-sveitinni (Tekið af heimasíðu tónskáldsins: www.snorrisigfusbirgisson.com). Hér má finna linka á hljóðfæra- og söng tónlist eftir Snorra: http://www.snorrisigfusbirgisson.com/piano.html ; http://www.snorrisigfusbirgisson.com/clarinet.html http://www.snorrisigfusbirgisson.com/violoncello.html ; http://www.snorrisigfusbirgisson.com/lever-harp.html http://www.snorrisigfusbirgisson.com/guitar.html ; http://www.snorrisigfusbirgisson.com/flute.html http://www.snorrisigfusbirgisson.com/2-performers.html ; http://www.snorrisigfusbirgisson.com/3-performers.html http://www.snorrisigfusbirgisson.com/4-performers.html ; http://www.snorrisigfusbirgisson.com/ensembleschamber-orchestra.html http://www.snorrisigfusbirgisson.com/chamber-orchestra-with-soloists.html ; http://www.snorrisigfusbirgisson.com/symphony-orchestra.html http://www.snorrisigfusbirgisson.com/choir-satb-ttbb.html ; http://www.snorrisigfusbirgisson.com/voice-one-or-two-instruments.html http://www.snorrisigfusbirgisson.com/voice-ensembles.html ; http://www.snorrisigfusbirgisson.com/voice-chamber-orchestra.html