Vetrarleyfi 14. - 20. feb

Minnum á að vetrarleyfi er í Tónmenntaskólanum 14. - 20. febrúar að báðum dögum meðtöldum. Á það skal minnst að þegar haust- og vetrarleyfi eru ákveðin er farið eftir útsendu dagatali frá Skóla- og frístundasviði borgarinnar. Borgin mælist til þess að skólar fari eftir þessum vissu dögum þó það sé ekki skylda. Því er allur gangur á því hvað hver skóli ákveður fyrir sig. Í Tónmenntaskólanum eru nemendur úr um 18 grunnskólum borgarinnar og því höfum við alltaf farið eftir þessum tilmælum og notast við sömu daga og gefnir eru upp í dagatali Skóla- og frístundasviðs. Við vonum að þið njótið vetrarleyfis og komið endurnærð, hress og kát til baka.

Deila fréttinniSenda í tölvupósti
Allar fréttir