Stofnun foreldrafélags Tónmenntaskóla Reykjavíkur

Þriðjudaginn 16. október kl.18 verður stofnfundur foreldrafélags Tónmenntaskóla Reykjavíkur haldinn á sal skólans.

Tilgangur foreldrafélags er

  • að efla tengsl foreldra, nemenda og skólans sem og tengsl nemenda innbyrgðis
  • að stuðla að jákvæðum skólabrag þar sem gleði og samvera er í öndvegi
  • að efla virkan þátt foreldra í uppbyggingu skólastarfsins
  • að gefa foreldrum tækifæri til að hittast og ræða málin sín á milli
  • að efla traust og virðingu milli skólans og heimilanna.

Við vonum að sem flestir foreldrar bregðist vel við, sýni stuðning sinn við skólann og fjölmenni á fundinn.

Hlökkum til að sjá ykkur 😀

Deila fréttinniSenda í tölvupósti
Allar fréttir