Máfurinn - ókeypis námskeið

Máfurinn tónlistarsmiðja er vikulangt námskeið fyrir börn 8-12 ára sem hafa áhuga á tónlist og tónsköpun. Þemað í smiðjunni í ár er sögur og tenging þeirra við tónlist. Við vinnum skapandi tónsmíðar, förum í spunaleiki og spilum bæði saman og fyrir hvert annað á ýmis hljóðfæri. Kennarar á námskeiðinu, sem er haldið í Tónmenntaskólanum, eru Ásthildur og Ólína Ákadætur. Fjórar tímasetningar eru í boði: 12. - 16. júní kl. 9:00- 12:00 eða 13:00-16:00 19. - 23. júní kl. 9:00- 12:00 eða 13:00-16:00. Vakin er athygli á því að námskeiðið er ókeypis en skráning fer fram hér https://forms.gle/kB7sx7VQdvLCTKKK6

Deila fréttinniSenda í tölvupósti
Allar fréttir