Jólatónleikar og síðustu kennsludagar fyrir jól

Jólatónleikar skólans verða laugardaginn 9. desember kl. 14 í Bústaðakirkju. Á þeim tónleikum spila ekki allir nemendur skólans en auðvitað eru öll velkomin að koma og hlusta. Húsið opnar fyrir hlustendur kl.13:40. Síðustu kennsludaga fyrir jól verða helgaðir allskyns jólasamspilum bæði í skólanum og utan hans. Jólafrí hefst frá og með laugardeginum 16. desember. Skólinn hefst svo aftur miðvikudaginn 3. janúar. Gleðileg jól.

Deila fréttinniSenda í tölvupósti
Allar fréttir